Landakotsskóli sigraði í stærðfræðikeppninni Pangeu 2021
Það var fulltrúi Landakotsskóla, Iðunn Helgadóttir, sem sigraði í úrslitum stærðfræðikeppninnar Pangeu 2021 í 8. bekk yfir allt Ísland.
Iðunn sigraði með yfirburðum en næstir á eftir henni voru Sólon Chanse Sigurðsson, Setbergsskóla, í 2. sæti, og Elvar Magnússon, Vatnsendaskóla í því þriðja.
Við óskum Iðunni innilega til hamingju og erum að vonum afar stolt.