Þemadagar í Landakotsskóla
Ísafold og Janelle
Á þemadögum í Landakotsskóla á þessu ári var fjallaðum Barnasáttmálann. Barnasáttmálinn snýst um það að mannréttindi eiga að tryggja öllum manneskjum rétt til þess að njóta mannlegrar reisnar, eins og meðal annars kemur fram í Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna frá 1948. Börn eiga að sjálfsögðu að njóta sömu mannréttinda og fullorðnir. Vegna þroska- og reynsluleysis njóta börn ekki alveg sömu réttinda og það er það sem Barnasáttmálinn snýst um. Til að fá meiri upplýsingar um Barnasáttmálann kíkið endilega á barnasattmali.is. Á Þemadögum 2016 var skólanum skipt í nokkra hópa. 5 ára bekkur til 4. bekkur var saman og skipt í 11 hópa og svo var 5.-10. bekkur saman í hóp og einnig skip t í 11 hópa. Við erum fréttastofan Barnafréttir og við heimsóttum alla hópana, kynntum okkur málið, tókum viðtöl og skrifuðum svo fréttir um það sem fyrir augum bar.