Unesco skólaviðburður
26.október 2018
Við fögnuðum Degi Sameinuðu þjóðanna þann 24. október með UNESCO skólaviðburði þar sem nemendur okkar og nemendur í Salaskóla lærðu um Heimsmarkmiðin. Frú Eliza Reid forsetafrú og verndari Félags Sameinuðu þjóðanna hvatti ungmennin til að standa vörð um þessi markmlið. Þá veitti Lilja D. Alfreðsdóttir mennta- og menningamálaráðherra þeim fjórum skólum á Íslandi sem fyrstir taka þátt í skólaneti UNESCO viðurkenningu. Og við erum einn af þeim! Til hamingju Landakotsskóli!
Auk Landakotsskóla eru það Salaskóli, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti og Kvennaskólinn.
Þetta er spennandi verkefni sem við erum stolt af og ætlum að standa okkur vel í að sinna því.
Við hvetjum alla til að kynna sér heimsmarkmiðin hér https://www.un.is/heimsmarkmidin/
Hér má sjá fleiri myndir frá þessum skemmtilega degi.