Samfélagsverðlaunin 2014
Forseti Íslands afhendir ár hvert viðurkenningar fyrir Samfélagsverðlaunin 2014 en það er Fréttablaðið sem stendur fyrir þessum verðlaunum og eru þau veitt í 6 flokkum og geta allir sent inn tilnefningar. Gunnar Vignir Guðmundsson sundkennarinn okkar var tilnefndur í flokknum frá kynslóð til kynslóðar. Tilnefningin kom frá sundlaugargestum Vestubæjarsundlaugar og foreldrum barna sem Gunnar hefur kennt í gegnum árin. Við óskum Gunnari til hamingju með tilnefninguna, hann er vel að henni kominn.