Skólasetning
Skólasetning verður í Landakotsskóla mánudaginn 24. ágúst fyrir 2. - 10. bekk.
2., 3. og 4. bekkur kl. 9.
Alþjóðadeild kl. 10.
5., 6., og 7. bekkur kl. 11.
8., 9., og 10 bekkur kl. 12.
Skólasetning 5 ára barna og 1. bekkjar verður föstudaginn 21. ágúst kl. 16.
Á skólasetningu gefst foreldrum kostur á að hitta sérgreinakennara og verður sagt örstutt frá áhersluatriðum í list- og verkgreinum og íþróttum, kennslubækur annarra greina munu liggja frammi. Síðan mun umsjónarkennari funda með hverjum bekk.