Skákmót Landakotsskóla
Fimmtudagur 11.maí 2017
Föstudaginn 5.maí fór fram skákmót Landakotsskóla árið 2017. Stóð öllum nemendum 1. - 10. bekkjar skólans til boða að taka þátt og voru keppendur 60 talsins, takk fyrir og bless!
Tefldar voru 5 umferðir og að þeim loknum þurfti að tefla sérstaklega um efstu þrjú sætin. Var það Stefán Borgar Brynjólfsson í 5. bekk sem sigraði mótið, Henrik Nói Júlíusson Kemp í 7. bekk hlaut silfur og Lucius Nackmyar í 5. bekk alþjóðadeildar hlaut bronsið. Einnig voru veitt verðlaun fyrir bestan árangur í hverjum árgangi og sigurvegarar voru eftirfarandi:
KristjánHelgason, 1. bekk
Mattías Björgvin Kjartansson, 2. bekk
Styrmir Viggósson, 3. bekk
Iðunn Helgadóttir, 4. bekk
Stefán Borgar Brynjólfsson, 5. bekk
Nicholas Smith, 6. bekk
Henrik Nói Júlíusson Kemp, 7. bekk
Daníel Xiangnan Douglas, 8. bekk
Kári Egilsson, 9. bekk
Þórunn Jóhanna Þórisdóttir, 10. bekk
Sérstök verðlaun fyrir dugnað, áhuga og bestu hegðun hlutu Kári Geir Árnason í 1. bekk og Kirill Zolotuskiy í 7. bekk.
Hér má sjá fleiri myndir frá mótinu.