Gleðilegt sumar
15.júní 2018

Með þessari skemmtilegu mynd af útskriftarhópnum okkar viljum við í Landakotsskóla óska öllum okkar nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars. Við hlökkum til að hitta nemendur aftur í haust og byrja nýtt skólaár.

29.maí 2018

Í dag buðu nemendur í 3.bekk samnemendum sínum úr 5 ára og 4.bekk að koma á sal og horfa á lokaæfingu á leikriti sem þau sömdu í tónmennt í vetur. Leikritið, sem fjallar um tröll og nemendur, var stórskemmtilegt og gleðin skein úr andlitum áhorfenda. Hér má sjá fleiri myndir frá sýningunni.
28. maí 2018

Þann 27. apríl síðastliðinn var árlegt skákmót skólans haldið. Í ár tóku 56 nemendur þátt í mótinu. Þann 23. maí sl. var svo verðlaunaafhending á sal skólans. Á myndunum má sjá vinningshafana, en þar vantar þó Styrmi Viggósson úr 4.bekk. Við óskum öllum þátttakendum til hamingju með þátttökuna og þykir okkur magnað að finna þennan mikla skákáhuga hjá nemendum skólans.

Vinningshafar yfir allan skólann:
1. Kári
2. Tristan
3. Shintaro
Vinningshafar árganga:
1.b. Kormákur
2.b. Leon
3.b. Matthías Björgvin
4.b. Styrmir
5.b. Iðunn
6.b. Krummi
7.b. Tristan
8.b. Kirill
10.b. Kári
Sérstök verðlaun fékk Tinna Sif í 4.bekk.