Læra með því að leika
1. Leiksýningar leiknar af börnum fyrir börn
2. Stjórnað af atvinnufólk í faginu.
3. Einkunnarorð: sjálfsagi, samvinna, einbeiting og sköpunargleði.
Nú er að hefjast sjötta leikárið hjá Leikhúsi barnanna í samvinnu við Landakotsskóla og Melaskóla. Öll börn í Reykjavík eru velkomin. Við bjóðum nemendum úr 5., 6., 7. og 8. bekk upp á leiklistarnámskeið og mun haust- og vornámskeiði ljúka með leiksýningu.
Haustnámskeið: Við munum kenna börnunum nokkur undirstöðuatriði leiklistarinnar, sem fela í sér líkamlegan gamanleik, "slapstick" og trúðaleik, en einnig verður lögð áhersla á samleik, framsögn og raddbeitingu. Æfingar á Jólaævintýri Dickens í leikgerð Ingu Bjarnason verða í brennidepli.
Tími: Námskeiðið hefst föstudaginn 11. September. Bráðabirgðadagsetning á frumsýningu er 28. nóvember.
Kennt verður á föstudögum frá kl 14:20 til 16:00 og Þeir sem eru með stærstu hlutverkin og eru lengra komnir, munu líka æfa á miðvikudögum kl. 14:20 til 16:00 Þegar nær dregur að frumsýningu og við hefjum æfingar í leikhúsinu verða börnin að vera undir það búin að koma á aukaæfingar en það verður gert í samráði við foreldra.
Staður: Æft verður í Melaskóla á föstudögum og í Landakotsskóla á miðvikudögum og sýningar verða haldnar í Iðnó “leikhúsinu við tjörninna.”
Námskeiðslok: Frumsýning á Jólaævintýrinu verður í lok nóvember fyrir aðstandendur barnanna og aðrar sýningar eru fyrirhugðar fyrir nemendur úr Melaskóla og Landakotsskóla í samstarfi við skólastjóra skólanna.
Kostnaður: 35.000 kr. á barn.
Skráning og upplýsingar:
Inga Bjarnason leikstjóri og leiklistarkennari This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. S. 8685560.
Virginia Gillard trúðaleikari This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. , S. 6923642.