Kaffihúsaferð 8. bekkjar

on .

16.janúar

Í desember fór 8. bekkur á Kaffi Haiti í frönskutíma. Var þetta verklegur tími þar sem nemendur þurftu að panta sér heitt súkkulaði á frönsku.

Elda, eigandi kaffihússins, tók sérlega vel á móti þeim og talaði eingöngu frönsku við nemendur. Hér má sjá fleiri myndir úr ferðinni.

Kirkjuferð 19.desember

on .

19. desember

Í dag fóru nemendur og starfsfólk Landakotsskóla í Landakotskirkju þar sem nemendur 2. bekkjar sýndu helgileik, nemendur í Alþjóðadeild D sungu og lásu upp og kór nemenda í 4.-6. bekk söng tvö lög. Gaman var að sjá fjölda foreldra og annarra ættingja sem komu til að njóta stundarinnar með okkur. Fleiri myndir úr kirkjuferðinni má sjá hér.

Jólaföndur yngsta stigs

on .

14. desember

Nemendur á yngsta stigi Landakotsskóla hafa undanfarna þriðjudaga föndrað saman í blönduðum hópum ýmsa fallega hluti í anda jólanna.

Hefur þetta gengið virkilega vel og allir haft gaman af. Fleiri myndir frá jólaföndrinu má sjá hér.