Starfslýsingar, annað starfsfólk

on .

Stuðningsfulltrúar
  • Vinnur í nánu samstarfi við umsjónarkennara og deildarstjóra stoðþjónustu;
  • Er kennara til aðstoðar við að sinna einum eða fleiri nemendum sem þurfa sérstaka
    aðstoð;
  • Getur eftir aðstæðum einnig sinnt öðrum nemendum í bekknum, m.a. til að kennari geti aðstoðað nemanda sem þarf séraðstoð og til að draga úr sérstöðu nemenda með sérþarfir;
  • Hefur eftirlit með nemendum inni í kennslustofu í fjarveru kennara, þ.e. gætir þess að þeir vinni verkefni sem lögð hafa verið fyrir;
  • Aðstoðar nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð;
  • Vinnur eftir áætlun sem kennari hefur útbúið í samráði við sérkennara og foreldra;
  • Ýtir undir færni og sjálfstæði nemenda í námi og daglegum athöfnum t.d. með því að hvetja þá til að gera sem mest sjálfir og hrósa þeim fyrir viðleitni í þá átt;
  • Leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum innan og utan kennslustofu;
  • Veitir nemendum félagslegan stuðning með því að hlusta á frásagnir og reynslu þeirra
    og spjalla við þá þegar aðstæður leyfa;
  • Fylgir einum eða fleiri nemendum á ferðum þeirra um skólann, í frímínútum og vettvangsferðum og aðstoðar þá eftir þörfum.
Tölvuumsjónarmaður
  • Sér um aðgang starfsfólks að innra neti skólans;
  • Fylgist með nýjungum í skólastarfi, tengt upplýsingatækni, sækir námskeið, kynningarfundi og aðra fundi er tengjast starfinu;
  • Fylgist með og kemur að undirbúningi samræmdra prófa í 4., – 7. og 9. bekk;
  • Aðstoðar við fyrirlögn utanaðkomandi kannana;
  • Heldur utan um tækjakost skólans tengt upplýsingatækni.

Nemendaráðgjafi

Hlutverk nemendaráðgjafa er að standa vörð um velferð allra nemenda, styðja þá og liðsinna í þeim málum sem snerta nám, líðan og framtíðaráform þeirra. Nemendaráðgjafi er talsmaður nemenda og trúnaðarmaður. Hann er bundinn þagnarskyldu um einkamál þeirra.

  • Tekur viðtöl við nemendur að þeirra ósk;
  • Trúnaðarmaður og málsvari nemenda;
  • Er í samskiptum við foreldra og kennara þeirra nemenda, sem til hans leita, í samráði við viðkomandi nemendur;
  • Hefur umsjón með könnunum sem þörf er á í þágu nemenda;
  • Tekur á móti erindum frá nemendum, foreldrum þeirra, kennurum og stjórnendum skólans;
  • Er ráðgefandi í málefnum nemenda með félagsleg og tilfinningaleg vandamál;
  • Er ráðgefandi og til aðstoðar í eineltis- og forvarnarmálum;
  • Situr í nemendaverndarráði og eineltisteymi skólans;
  • Sér um valáfangann heimavinna;
  • Tekur þátt í vinnu við að þróa forvarnaráætlun skólans.

Starfsmaður á bókasafni

  • Sér um safngæslu og daglega umsjón;
  • Sér um útlán bóka og annarra gagna;
  • Sér um frágang bóka;
  • Heldur röð og reglu á bókum í hillu;
  • Sér um innkaup á bókum og öðrum gögnum;
  • Sér um viðhald og viðgerð á bókum og gögnum.
Forstöðumaður frístundar
  • Er verkstjóri og næsti yfirmaður starfsfólks, skipuleggur störf þeirra og heldur skrá yfir vinnutíma þeirra;
  • Undirbýr og skipuleggur fundi með starfsmönnum frístundar;
  • Heldur fundi með foreldrum/forráðamönnum barna sem eru að hefja skólagöngu og barna með sérúrræði;
  • Hefur reglulega viðtalstíma fyrir foreldra/forráðamenn til þess að ræða málefni barns í frístund;
  • Fylgist með því að nauðsynleg leikföng, búnaður og önnur gögn séu til staðar og leggur fram tillögur þar um til skólastjóra;
  • Sér um frágang eftir vetrarstarfið og að eðlilegt viðhald fari fram á búnaði.

Starfsmenn frístundar

  • Taka fullan þátt í öllu dagskipulagi innan frístundar;
  • Skipuleggja dagskrá í samráði við aðra starfsmenn;
  • Bera ábyrgð á hópastarfi eða klúbb;
  • Aðstoða nemendur í leik og starfi;
  • Efla virkni, ábyrgð, sjálfsmynd og sjálfstæði barnanna;
  • Sjá um að frágangur húsnæðis sé viðunandi að vinnudegi loknum.

Skrifstofustjóri

  • Sinnir daglegri afgreiðslu á skrifstofu skólans ásamt símsvörun;
  • Svarar fyrir skólans hönd ýmsum fyrirspurnum eða vísar þeim til réttra aðila;
  • Sér til þess að skilaboð berist til kennara og annarra starfsmanna;
  • Tekur á móti pósti og kemur honum í réttar hendur;
  • Tekur á móti og afhendir gögn sem berast inn í skólann;
  • Pantar pappír og aðrar vörur sem tilheyra skrifstofuhaldi og fjölföldun á vegum skólans;
  • Annast fjölföldun og póstsendingar;
  • Sér um útprentun á nemendalistum, stundaskrám og vinnuskýrslum;
  • Hefur yfirsýn yfir skráningu nemenda í skólann og miðlar til Reykjavíkurborgar;
  • Sér um innritun og inntöku nýrra nemenda og raðar þeim í bekki í samráði við skólastjóra;
  • Gengur frá gögnum um nemendur sem flytjast í aðra skóla;
  • Hefur umsjón með skráningu barna í frístund og stendur skil á innheimtulistum þar að lútandi;
  • Sér til þess að gögn varðandi nemendur og bókhald séu skráð og varðveitt og sér umsamskipti við bókara og endurskoðanda skólans;
  • Annast forfallaskráningu vegna nemenda í Mentor;
  • Sér um almenna vinnu tengda Mentor s.s. skráningu og umsjón með að nemenda- og starfsmannalistar séu réttir;
  • Heldur utan um skráningu nemenda í mötuneyti;
  • Er í samstarfi við verkefnastjóra forfalla fer yfir stöðu mánaðarlega og fer yfir vinnustunda og launalista;
  • Sér um að á skrifstofu sé jafnan farið yfir reikninga skólans og fylgst með færslum;
  • Sér um skjalavörslu skólans;
  • Sér um viðhald fjölföldunartækja og aðstoðar starfsfólk við notkun þeirra;
  • Afgreiðir strætómiða pantar leigu á rútum vegna sund- og vettvangsferða;
  • Situr í persónuverndarteymi skólans;
  • Vinnur rekstraráætlun með skólastjóra;
  • Upplýsir skólastjóra reglulega um fjárhagsstöðu skólans og fylgist með að áætlanir séu í takti við daglegan rekstur;
  • Fer yfir vinnustunda og launalista;
  • Hefur þekkingu á viðeigandi kjarasamningum og hlutverki vinnuveitanda;
  • Heldur utan um starfsmannagögn, það er skráir inn og viðheldur upplýsingum um starfsmenn;
  • Sér um útborgun launa og launatengdra gjalda;
  • Hefur umsjón með þeim greiðslum sem skólanum berast s.s. vegna skemmtana,
    nemendaferða og reksturs mötuneytis;
  • Sér um pantanir á þeim gögnum sem nauðsynleg eru rekstri skrifstofunnar eða skólans að ósk skólastjórnenda;
  • Annast mataráskrift starfsmanna;
  • Móttekur greiðslur fyrir hina ýmsu þætti skólastarfsins;
  • Sinnir móttöku skjala á skrifstofu skólans.

Umsjónarmaður skóla

  • Sér um að húsnæði skólans og allur búnaður, ásamt skólalóð, séu ávallt í fullnægjandi
    ástandi;
  • Sér um að húsnæðið sé opið við upphaf skóladags og ber ábyrgð á frágangi húsnæðis við lok skóladags;
  • Hefur umsjón með lyklamálum til starfsmanna skólans og annarra sem þurfa þykir;
  • Sinnir almennu viðhaldi skólahúsnæðis og lóðar og kallar iðnaðarmenn til verka;
  • Hefur umsjón með ræstingu skólahúsnæðis ásamt því að sjá um skipulagningu hennar;
  • Sér um innkaup á ræstivörum og öðru er varðar verksvið viðkomandi og einnig að
    gjaldaliðir ræstingar séu innan fjárheimilda;
  • Er næsti yfirmaður skólaliða, skipuleggur og ber ábyrgð á störfum þeirra;
  • Sér um að almennur tækjakostur skólans sé jafnan í lagi þar með talið móðurklukka og
    kemur þeim tækjum skólans sem biluð eru til viðgerðar;
  • Hefur umsjón með því að salur og annað húsnæði sé undirbúið fyrir fundi, skemmtanir
    og aðrar þær uppákomur sem starf skólans kallar á;
  • Hefur umsjón með öryggiskerfi skólans tengdu Öryggismiðstöð Íslands og Securitas;
  • Annast eftirlit og viðhald á húsbúnaði;
  • Sér um að hiti, lýsing og loftræsting hússins sé fullnægjandi og að kerfi þessi starfi rétt;
  • Annast endurnýjun hvers konar ljósgjafa svo sem flúrpípa og pera;
  • Sér um frágang sorps frá skólanum, hreinsun á rusli á skólalóð og flokkun sorps;
  • Annast snjómokstur frá dyrum og af tröppum skólans;
  • Fær verktaka til að sinna meiri háttar verkefnum eins og snjómokstri á bílastæðum,
    leiksvæðum og sanddreifingu eftir þörfum;
  • Sér um að flytja húsgögn og tæki milli notkunarstaða í skólanum, þegar þörf er á;
  • Sér um allar merkingar á rýmum innan dyra;
  • Fer með umsjón öryggismála skólans og kemur að skipulagi neyðaráætlana.

Skólaliðar

  • Reynir að leysa deilur og gætir þess að umgengnisreglur séu virtar;
  • Halda skólanum hreinum og snyrtilegum;
  • Aðstoðar nemendur ef með þarf við að ganga frá fatnaði sínum og gætir muna þeirra sem og klæða;
  • Sér um framreiðslu á mat og frágang;
  • Aðstoðar við uppröðun og tilfærslu á húsgögnum og tækjum þegar þörf er á;
  • Þurrkar bleytu af göngum og heldur snyrtingum hreinum yfir daginn;
  • Þrífur reglulega gólf á ákveðnu svæði.

Skólahjúkrunarfræðingur
Skólahjúkrunarfræðingur sinnir skipulagðri heilbrigðisfræðslu og nýtir þau tækifæri sem gefast til að fræða nemendur um flest það sem lýtur að heilbrigði og vellíðan. Áhersla er lögð á mikilvægi heilbrigðra lífshátta og að hver og einn ber ábyrgð á eigin heilsu og foreldrar á heilsu barna sinna.

Tékklisti fyrir frímínútur

on .

Tékklisti fyrir frímínútur.

Ef veður er slæmt hafa skólastjórnendur samráð um það hvort nemendur verði inni. 

Nemendum í 1. -7. bekk ber að fara út í frímínútur tvisvar á dag.

Nemendur í 8.- 10. bekk hafa val um hvort þeir fara út eða eru inn í frímínútum.

  • þeir mega vera inni í stofum - en hurð á að vera opin fram
  • þeir mega fara út af skólalóð í frímínútum. 

Verkefnastjóri 2 ber ábyrgð á og sér um að skipuleggja viðveru í  frímínútum, bæði úti og inni. 

Útivakt:

Leiksvæði úti er skipt upp í þrjú afmörkuð vinnusvæði merkt grænt, rautt og blátt. Starfsmenn eiga að vera á sínu svæði samkvæmt plani.

Muna að:

  • Fara út á réttum tíma.
  • Vera í gulum vestum.
  • Aðstoða börn við að komast inn í leik ef þarf og fylgjast með þeim sem sérstaka hjálp þurfa, hlusta og bregðast við þegar nemendur þurfa aðstoð. 
  • Minna börn á að fara ekki út af lóð. 
  • Snjókast er aðeins leyft á ákveðnu svæði. 
  • Að vera ekki í símanum nema nauðsyn beri til.
  • Í lok frímínútna ganga um svæðið og safna saman hlutum (föt... o.s.frv.) sem börnin kunna að hafa skilið eftir.

Litlu skott, leiksvæði vestan megin við skólann:

  • Leikföng eru í körfum við innganginn sem nemendur geta nálgast og farið með út.
  • Reipi eingöngu notuð í snú snú eða til að sippa.
  • Sandur á bara heima í sandkössum.
  • Eingöngu má klifra í þar til gerðum leiktækjum. 
  • Nemendur séu utan girðingar sem er til að vernda trén. 
  • Eingöngu fullorðinn má sækja bolta upp á þak og út fyrir leiksvæði.
  • Kista fyrir bolta, Djanga og Mikadó - ganga frá í kistuna frá kl. 12:40.

Stóru skott, leiksvæði austan við skólann og Landakotstún:

  • Eingöngu fullorðinn má sækja bolta upp á þak og út fyrir leiksvæði.
  • Passa að boltum sé skilað inn í stofur – hver bekkur er með sinn bolta.
  • Boltavöllum er skipt á milli árganga, fylgjast vel með að þetta skipulag sé virt og gangi átakalaust fyrir sig. 
  • Passa að nemendur séu ekki í fótbolta fyrir framan gömlu byggingu skólans.
  • Hringja inn handvirkt/með flautu úr hádegi, kl.12:25 inn vera með nemendum í matsal til kl.12:40
  • Sýnum trjágróðrinum viðrðingu, stranglega bannað að rífa/brjóta greinar af trjám, né slást með greinum. 
  • Matsalur:

    • Nemendur bíða í röð eftir matnum
    • Nemendur flokka rusl í viðeigandi fötur
    • Passa að umsjónarmenn gangi frá, þurrki af borði og sópi það mesta af gólfi.
    • Hjálpa börnum að skammta sér.
    • Hjálpa börnum að ganga rétt frá matarafgöngum og amboðum.
    • Sjá til þess að börnin fari út (litlu) eða í tíma (stóru).

Inni vakt:

Innisvæði er skipt í tvennt, yngri og eldri nemendur, einn á vakt á hvoru svæði.

Þeir sem eru inni aðstoða nemendur á þann hátt sem best hentar hvaða aldri. Þeir taka við nemendum af leikvelli sem hafa meitt sig og sinna þeim og hleypa þeim inn sem þurfa að fara á snyrtingu.

  • Fara niður í kjallara Túngötumegin.
  • Senda innipúkana út.
  • Minna á að við göngum á göngunum og erum ekki inni á skónum.
  • Hengja föt á snaga.
  • Setja skó í skóhillu.

Viðurlög við brotum á skólareglum

  • Sjá agaferil
  • Sjá lausnablað fyrir nemendur 
  • Atvikaskráning, sjá eyðublað 
  • Nemendaverndarráð fundar aðra hverja viku og agamál eru á dagskrá þess. Þar situr
  • skólastjóri ásamt deildarstjóra stoðþjónustu, námsráðsgjafa, hjúkrunarfræðingi og fulltrúa þjónustumiðstöðvar.
  • Ef foreldrar eru ósáttir við málsmeðferð geta þeir skotið máli sínu til skólanefndar sem fer með æðsta vald í málum skólans.
  • Ef nemanda er vísað úr kennslustund vegna ótilhlýðilegrar hegðunar skal undantekningarlaust farið með hann til skólastjóra sem fær honum önnur verkefni.
  • Alvarleg agabrotamál eru jafnan rædd í nemendaverndarráði og ef ástæða þykir til er leitað aðstoðar hjá sérfræðingum á þjónustumiðstöð.