Skýrslur stjórnar
Reglur um tölvu- farsímanotkun
1.1. Reglur um tölvu- og farsímanotkun í skóla
Slökkt skal á farsímum og hvers kyns hljómtækjum í kennslustundum og í matsal. Síma skal geyma í þar til gerðum skápum í 6.–10. bekk.
Reglur um símanotkun í Landakotsskóla 2019–2020
Nemendur megaekki nota farsímana sína í skólanum nema með leyfi kennara.
Ef foreldrar þurfa að ná í barn sitt er hægt að hringja á skrifstofu í síma 5108200. Ef nemendur þurfa að hringja geta þeir sömuleiðis fengið afnot af síma skólans.
Símar eru geymdir:
- á yngsta stigi í skólatöskunni þar sem slökkt skal á þeim.
- á miðstigi og unglingastigi í skápum.
- Nemendur setja símana sína þangað í upphafi dags og gæta þess að slökkva á þeim áður.
- Í dagslok fá nemendur símana afhenta aftur.
- Ef nemendur mæta seint er það á þeirra ábyrgð að muna eftir að afhenda símana.
- Sömu reglur gilda fyrir alla nemendur skólans.
Spjaldtölvur og fartölvur í kennslu, reglur um notkun og umgengni:
- Óheimilt er með öllu að taka upp hljóð/mynd í skólanum nema sem tengist verkefnavinnu
nemenda. - Spjaldtölvur eru einungis ætlaðar til náms, alls ekki til leikja.
- Spjaldtölvur skulu vera í kennslustofum meðan nemendur eru úti í frímínútum.
- Nemendur skulu í hvívetna hlýða fyrirmælum starfsfólks um notkun snjalltækja.
Í kennslustund ættu nemendur að:
- meðhöndla öll tæki varlega
- láta kennarann vita ef einhver búnaður virkar ekki svo hægt sé að leggja hann til hliðar
- skrá sig inn á sinn reikning og vista alla vinnu á Google Drive
Í lok kennslustunda ættu nemendur að:
- skrá sig út af reikningi sínum
- loka öllum opnum skrám og forritum
- ganga snyrtilega frá fartölvunni á tölvuvagn og stinga í samband
Nemendum er óheimilt að:
- skrá sig inn á kennaranetið
- hlaða niður og vista skrár á tækinu
· breyta stillingum á tækinu, þar á meðal bakgrunnsmynd