Unglingar á Egluslóðum

on .

22. maí 2017

Nemendur unglingastigs Landakotsskóla fóru í Borgarfjörð á slóðir Egils sögu sl. föstudag. Fjörðurinn skartaði sínu fegursta í sólskini og sunnanblæ. Nemendur 10. bekkjar, sem hafa verið að lesa Eglu í vetur, sáu um leiðsögnina. Óhætt er að segja að þau stóðu sig öll með mikilli prýði. Allir nemendur unglingastigsins eiga líka hrós skilið fyrir góða umgengni og prúðmannlega framkomu. Nokkrar svipmyndir úr ferðinni má nálgast hér.

 

Tónlistarleikhús

on .

15.maí 2017

 

Nemendur í 3. bekk hafa í vetur unnið við gerð tónlistarleikhúss í tónmenntatímum hjá Nönnu Hlíf. Ákváðu þau að setja upp söngleik um Bangsímon sem tókst með eindæmum vel. Lögin og leikritið sömdu þau hjá Nönnu Hlíf, dýragrímur bjuggu þau til í textíl hjá Stefaníu og skógurinn varð til í myndmennt hjá Louise. Í morgun buðu þau skólastjóra og foreldrum á fyrri sýningu og því næst nemendum úr 1. og 2.bekk á seinni sýningu. Myndirnar segja meira en mörg orð og hér er tengill á myndasafnið.

Summer program in the International department. Sumarnámskeið Alþjóðadeildar.

on .

15.maí 2017

Here is a link for the summer program in the International department of Landakotsskóli. This is for any one ages 6-14, even if they are not Landakotsskoli students. 

Hér má finna tengil á sumarnámskeið Alþjóðadeildar Landakotsskóla. Námskeiðin eru fyrir börn á aldrinum 6-14 ára og er ekki gerð krafa um að þau stundi nám við skólann.